heimilismatur
Gagnlegar upplýsingar
Veisluþjónusta
vefuppskriftir
16.01.2012 09:16:43 / heimilismatur

Saltkjöt og baunir :)

Þorrinn að byrja og alveg tilvalið að fá sér saltkjöt og baunir :)

2 kg saltkjöt (ekki verra að hafa feita með bita með)
2,5 l vatn
300 gr - 500 gr (1 pk) gular baunir (allt eftir því hve súpan á að verða þykk)
750 gr gulrófur
1 laukur
300 gr gulrætur
2-3 sneiðar beikon ef vill
1-2 súputeningar eða súpukraftur 

Það er ekki nauðsynlegt að leggja baunirnar í bleyti, en ef tíminn er naumur flýtir fyrir að að gera það.
Þá eru þær lagðar í bleyti í kalt vatn í ca 12-20 klst. Og geymdar þannig við stofuhita. Baununum hellt í gegnum sigti og skolaðar, settar í pott með vatninu ásamt kjötkrafti, hleypt upp suðu og froða fleytt ofan af. Soðið í ca. 30 mínútur.

Ef baunirnarnar eru ekki lagðar í bleyti eru þær skolaðar og settar yfir í kalt vatn og látnar sjóða í 1 klst áður en kjötið fer í pottinn. Froðunni fleytt ofan af eftir 15-20 mín. suðu.
Þegar bauninrnar byrja að mýkjast eru 2 – 3 bitar af kjöti settir út í en hinir soðnir sér til þess að súpan verði ekki of sölt.

Ath
að skola kjötið úr köldu vatni áður en það fer í pottinn.
(Nota má soðið af kjötinu til að þynna súpuna í lokin ef hún verður of þykk).
Látið sjóða í 30 mín. Smátt brytjuðum lauk ásamt, rófum og gulrótum í bitum (og/eða beikoni ef það er notað) bætt út í.
Hrært af og til í og soðið í ca. 30 mín. til viðbótar, eða þangað til baunirnar eru orðnar vel mjúkar. Færið síðan kjöt og grænmeti á fat og látið baunirnar malla nokkrar mínútur án loks. Við það þykkna þær og verða enn mýkri. 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2011 19:08:29 / heimilismatur

Bolla bolla

Vatndeigsbollur og hringur 

þessi er gömul og góð frá tengdamömmu og ég hef bakað hana í 25 ár ! virkar alltaf og hefur ekki klikkað hingað til ! 

100gr smjörlíki 
3 dl vatn
150 gr hveiti
2 tsk sykur
1/2 tsk salt
4 egg

Best er að hafa allt hráefni tilbúið .

Bræðið smjörlíkið í potti og setjið vatnið saman við þegar smjörl er bráðnað, láta suðuna koma aftur upp þegar búið er að setja vatnið út í .
setja hveiti út í pottinn og hræra rösklega í þessu þar til að þetta verður að einni bollu. Bara passa að taka pottinn af hellunni ef það er orðið of heitt ... við viljum ekki láta deigið brenna!

þá er deigið sett í hrærivélaskálina og dreift um skálina ( svona upp á með skálinni) þannig að það kólni fyrr ! þá er sykur og salt dreift yfir og látið kólna svolítið.
þegar búið er að kæla þannig að það verði volgt deigið þá er hrærivélin sett af stað og eggin sett í og þeytt í 15 mín. 

Svo eru bollurnar settar á ofnplötu en ég nota sprautupoka til að gera þær svolítið fallegri en vel hægt að nota bara tvær matskeiðar.

bollurnar eru svo bakaðar í 50 mín við 190 gráður og að sjálfsögðu ef þær eru litlar þá minni tími en passa sig VEL á að OPNA EKKI  ofninn ! 

gleðilegan bolludag :) 






» 16 hafa sagt sína skoðun

08.12.2010 17:59:25 / heimilismatur

ídýfur !

mér þykir sælgæti ekkert voðalega spennandi og ef ég fæ að ráða þá eru "sukk" kvöldin með ídýfum og smáréttum !! hér kemur ein ídýfa sem ég fékk í saumaklúbb hjá vinkonu minni sem sló hressilega í gegn ! þar sem mér finnst svakalega gaman að prófa einhvað nýtt þá hinsvegar var ég í miklum efa um þessa EN þetta er alveg ótrúlega gott og mjög fljótlegt að gera áður og skella inn í ofn um kvöldið.

Ætisþisla og spínatídýfa

2-3 vænar lúkur af fersku spínat
25 gr smjör bráðið
1/2 bufflaukur grófsaxaður
1 dós ætisþislar í saltvatni ( ekki í olíu ) fæst í Fjarðakaup
1/2 stór askja rjómaostur
1/2 poki rifinn mozzarella ostur
salt og pipar
sjóðið spínatið í smá vatni (mjög litlu) á pönnu í uþb 2 min takið af pönnunni og kreistið allan vökva úr því, bræða smjör á pönnu og mýkja laukinn í nokkrar mín.
 Setja spínat lauk og ætisþisla rjómaost og rifinn ost í matvinnsluvél (ég notaði töfrasprota) salt og pipra eftir smekk og setja í eldfast mót og inn í ofn þar til það hefur hitnað vel, svo er bara að skella doritos í skál og njóta þess að dýfa í þessa frábæru ídýfu :)


» 18 hafa sagt sína skoðun

07.12.2010 19:04:05 / heimilismatur

matur er góður :)

Enn og aftur ætla ég að endurtaka að ég er bara áhugamanneskja um mat og á blogginu hérna eru flestar uppskriftir sem ég hef reynt sjálf og að sjálfsögðu fengið hjá öðrum og prufað mig áfram með !
Ef fólk kannast við uppskriftirnar þá eru þær eingöngu hér af því að mér þykir þær góðar og ég hef fundið þær á netinu og myndi þá halda að "kokkarnir" já eða áhugafólk um matargerð og bakstur hafi viljað að þær myndu blómstra í mörgum eldhúsum landsins og að sjálfsögðu þar sem Íslendingar eru erlendis.

ég hef ekki bloggað neitt sérstaklega um það ef ég set nýtt hér inn en hinsvegar eru uppskriftir alltaf að koma inn alveg eftir því hversu mikinn tíma ég hef en eins og staðan er kemur þetta í smá "slumpum" !

svo hér kemur það sem er vinsælt á þessu heimili þessa dagana

Amerískar pönnukökur:
2 bollar hveiti
4 tsk lyftiduft
2 egg
4 msk sykur
1-2 bollar mjólk
4 msk bráðið smjör
léttþeyta egg og sykur saman ( uþb 3 min ) setja svo þurrefnin út í og einn og hálfan bolla af mjólk, mér finnst gott að gera þetta í hrærivél en myndi ekki mæla með handþeytara ! deigið er þykkt og því betra að gera það í höndunum til þess að eyðileggja ekki þeytarann ! svo fer það eftir hversu þykkt deigið fólk vill hafa en ég set yfirleitt báða bollana út í. svo hita ég pönnu og hef hana mjög heita og skelli bara sirka einni sleif af deigi á pönnuna og steiki.
svakalega gott með smjöri og Mable sýrópi :)



» 16 hafa sagt sína skoðun

10.03.2010 19:31:37 / heimilismatur

lostæti á lægra verði !

Ég fann uppskrifta bók hjá tengdamömmu sem er með þessari fyrirsögn og hún var svo góð að gefa mér hana :) frábærar uppskriftir en að sjálfsögðu kannski á það við 2007 "lægra verð" þannig að þetta er allavega uppskriftin sem ég valdi að hafa í matinn !

kjúklingasalat með kasjúhnetum

3 kjúklingabringur
2 msk ólífuolía
3 msk Soyasósa
2 msk púðursykur
1 chili-aldin fræhreinsuð og  saxað ( ég notaði rautt)
100 gr kasjúhnetur ( ég notaði þessar með saltinu! ekkert annað til í búðinni hér)
1 blaðlaukur sneiddur
1 rauð paprika fræhreinsuð og  sneidd
1 dl vatn
1 tsk maizena sósujafnari ( ég notað það ekki og held að hefði bara mátt sleppa)
maldon salt ( sem ég sleppti því ég var með saltaðar hnetur)
2 pokar salat frá hollt og gott ( ég bara notaði klettasalat og jöklasalat sem ég átti í ísskápnum)

skerið kjúklingabringur í þunnar ræmur . blandið ólífuolíunni, púðursykri og chili saman í skál og setjið kjúklingabringurnar niðurskornar ( smátt) saman við og láta liggja í kryddlegnum í uþb 1 klukkutíma. skera niður blaðlauk, paprikku mjög smátt.
Taka kjötið upp í sigti og láta vökvann skiljast frá kjötinu. steikja kjötið á pönnu og skella svo blaðlauk papriku og kasjúhnetunum út á eftir uþb 3 min og láta malla í smá stund og setja svo vökvann ( vatn og það sem rann af kjúklingnum) út á og láta malla í smá stund þykkja með sósujafnara ( ef þú vilt) skipta salatinu á fjóra diska og hellið kjúklingasósunni yfir.

verði ykkur að góðu :) þetta var mjög gott :)


» 19 hafa sagt sína skoðun

14.02.2010 19:01:37 / heimilismatur

Tvær nýjar uppskriftir

Ég fór í saumaklúbb hjá vinkonu þar sem hún var með frábæra kjúklingasalat og fengum við að sjálfsögðu uppskriftina hjá henni :)

Og sonurinn þurfti að finna fisk uppskrift í skólanum í vikunni og ég skellti honum líka inn :)

Kjúklingasalat freyjunnar ( fyrir 4-6)

8 kjúklingabringur
sesamfræ

Marenering:
engiferrót ( smá biti má sleppa )
 4 gulrætur
3 sellery stilkar
1/2 blaðlaukur
smá vatn
þetta á að sjóða þangað til þetta verður mjúkt,  setja svo í mixara og bæta út í 3-4 msk soyjasósu, 2-3 msk hungang og 1/2 krukka engifer í sýrópi ( Stem ginger in syrop og fæst í Hagkaup)
setja kjúklinginn í mareneringunar, hann má vera þar í nokkra klukkutíma. Síðar er kjúllinn steiktur og sumum finnst betra að steikja í ofni til að hann brenni ekki en mér fannst betra að gera það á pönnu :)

sósa:
1 hvítlaukur ( meiri hvítlaukur, sterkari sósa !)
1/2 flaska ólífuolía
1 steinseljubúnt
1/2 engiferkrukka ( hinn helmingurinn af Stem ginger in syrop)
þetta er allt sett í mixara. Gott að búa til sósuna um leið og mareneringu og leyfa henni að taka sig.

setja á disk eða í mót :salatblöð, ruccula, mylja Doritos og svo setja steikta kjúklinginn yfir og setja svo semsamfræ yfir allt

þannig að kjúklingurinn fer á disk hjá hverjum og einum og sósan með hvítlauknum er bara sett yfir eins og hver vill.

Plokkfiskur frá tengdamömmu

500 gr soðinn fiskur
400 gr soðnar kartöflur
1 meðal stór laukur
50 gr smjör
2 msk hveiti
3 dl mjólk
salt og pipar

saxið laukinn og látið krauma við vægan hita í smjörinu án þess að hann brúnist. Stráið hveiti yfir laukinn og smjörið, aukið hitann lítið eitt og hrærið vel í 1-2 min . Bætið mjólkinni út í smátt og smátt síðan fisk og kartöflum og mjólk. Hitið án þess að suðan komi upp. Hrærið varlega í á meðan svo fiskurinn verði laus í sér og blandist jafn í sósunni án þess að fara í tægjur. Bragðbætið með salt og pipar. Berið fram í skál ásamt seyddu rúgbrauði og smjöri.



» 16 hafa sagt sína skoðun

22.01.2010 21:04:27 / heimilismatur

langt síðan síðast !

og áfram með góðar uppskriftir :)

fann uppskriftasíðu á pressan.is þar sem Marta setur inn frábærar uppskriftir af góðum og hollum mat :) prufaði þessa í kvöld og skellti með heimabökuðu hvítlauksbrauði í ofninn :) var alveg svakalega gott og ekki slæmt að hafa afgang á morgun :) var bara ein um þetta allt og á nóg afgangs :) 

http://www.pressan.is/VeroldMortuMariu/Lesagrein/penne-pasta-med-basiliku-kjukling-og-sveppum--uppskrift

Uppskrift fyrir fjóra
500 g beinlaus kjúklingur,
safi úr hálfri sítrónu
olía til steikingar
salt og pipar eftir smekk
2 væn hvítlauksrif, skorin smátt
100 g sveppir
Setjið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn. Ef þið eruð með afgang af tilbúnum kjúklingi þá er nóg að hita hann. Kryddið með salti og pipar. Þá eru hvítlauksrifin skorin smátt og bætt út á. Látið malla í tvær mínútur. Þá er safinn úr sítrónunni kreistur yfir. Skerið sveppina smátt og bætið út á. Látið þetta malla saman þangað til kjúklingurinn er gegnum steiktur.
500 g spelt Penne pasta
4 stilkar af ferskri basilíku
12 kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
5 tsk grænt pestó
Penne pastað er soðið eftir leiðbeiningum á pakka.
Saxið basilíkuna smátt og skerið kirsuberjatómatana til helminga. Þegar Penne pastað er tilbúið er vatnið sigtað frá og kalt vatn látið renna á það. Setjið pastað í stóra skál og bætið kjúklingnum og sveppunum út á. Síðan er fersku basilíkunni, kirsuberjatómötunum bætt út á ásamt græna pestóinu. Hægt er að nota pestó úr krukku en auðvitað er best að búa það til frá grunni. Að lokum er öllu blandað vel saman.
Þessi réttur stendur fyrir sínu einn og sér og þarf ekki annað meðlæti nema þá kannski grænt salat.

og svo ætla ég að prufa þetta salat á morgun með afgöngunum :) 

http://www.pressan.is/VeroldMortuMariu/Lesagrein/ljuffengt-graent-salat-med-mondlum-avokado-og-dodlum--uppskrift

½ poki af fersku spínati
1 avókadó, smátt skorinn
12 kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
8 döðlur
12 möndlur
1 rauð paprika

Salatsósa:
4 msk ólífuolía
Safi úr hálfri sítrónu
1 tsk gróft sinnep
Maldon salt
¼ tsk agave síróp

Ristið möndlurnar á pönnu. Svo er spínatið sett í box, avókadóinn er skorinn niður og settur út á, kirsuberjatómatarnir eru skornir í tvennt, döðlurnar eru skornar smátt ásamt paprikunni.

Setjið olíu í skál og hellið sítrónusafanum út á. Svo er sinnepinu bætt út í ásamt agave sírópinu og maldon saltinu og allt hrært saman. Setjið sósuna í lítið box og hafið meðferðis í vinnuna eða skólann.

og svo er það bara gamla góða kjötsúpan á sunnudag :) sonurinn bað svo fallega :)

kv HG


» 17 hafa sagt sína skoðun

17.05.2009 20:39:13 / heimilismatur

Tómatpasta frá Sikiley

jæja þá er komið að því að skella tómatpastanum "fræga" hér inn en Ágústa vinkona mín á heiðurinn af því enda komið frá Sikiley :) EN það er bara þannig að hennar uppskrift er sú besta og hún slumpar bara út í uppskriftina eftir því hvernig henni líður !! þannig að svona er mín útgáfa af henni þar sem ég "reyndi" að horfa á það sem hún gerði en einhverja hluta vegna er hennar útgáfa alltaf best .... kannski af því að hún gerir hana :)

3-5 hvítlauksrif
6 tómatar
2 grænmetisteningar
3 dl vatn
1/2 feskur rauður pipar ( eða smá af þurrkuðum pipar bara passa að smakka sig til því hann er sterkari !)

skella hvítlauk söxuðum á pönnu og pipar og láta malla í smá stund ... skella svo tómötum út í, láta malla í smá stund og hræra vel í á meðan. Setja svo vatn og teninga út í og láta malla í allavega 20 min á lágum hita.
sjóða pasta( ég nota spaghetti )  þegar 20 min eru liðnar af mallinu og setja það svo í skál
setja gumsið út í og ég nota oft ferskan mozzarella sem ég er búin að skera í bita út í líka :) það er svakalega gott ef maður er mikill osta fan ! og svo hræri ég bara í !
Ég nota mikinn Parmesan ost út á þetta :)

þetta er uppskrift fyrir sirka 2

ef þú ert með fleiri þá er betra að tvöfalda uppskriftina !

kv HG




» 19 hafa sagt sína skoðun

14.04.2009 18:52:11 / heimilismatur

uppskrift af Barnalandi

hér er ein góð uppskrit sem ég náði í á Barnalandi en finn ómögulega hver setti hana inn ! svo hér kemur hún :)

Kjúklingauppskrift
100 gr cashewhnetur
600 g kjúklingabringur
2 dl saxaður laukur
3 msk smjör til steikingar
1 1/2 msk garam marsala krydd
½ tsk cayannpipar ( má sleppa )
1 dós niðursoðnir tómatar
1 dós 180 gr óskajógúrt með melónukokteil
3 tsk maisenamjöl
1 tsk sykur
Salt og nýmulinn svartur pipar

Aðferð:
Ristið cashewhneturnar á pönnu og setjið til hliðar. Skerið kjúklingabringurnar í strimla, steikið kjúklingastrimlana í smjörinu ásamt lauknum.

Kryddið með garam marsala og cayannpipar ( má sleppa eða bæta í síðast fyrir mildari sósu).
Blandið niðursoðnum tómötum saman við og lækkið hitann.
Blandið maisenamjölinu í jógúrtina og hrærið saman við á pönnunni.
Bragðbætið með sykri, salti og e.t.v meira af kryddi.
Að lokinni eldun stráið yfir cashewhnetunum og berið fram með nan brauði og hrísgrjónum.



» 17 hafa sagt sína skoðun

08.03.2009 17:59:02 / heimilismatur

kjúklingur

Ég ákvað að skella inn kjúklingauppskriftum frá Þórunni saumaklúbbs vinkonu minni :) alveg æðislega góðar og mæli hiklaust með tertunni ..... ég borða nefnilega ekki döðlur og í þessari uppskrift eru döðlur en ég fann ekki fyrir því !!! og það er algjört möst að nota karmellusósuna :) hún er alveg æðisleg :)

Kjúklingaréttur 1
 
1 poki osta dorítos
kjúklingabringur skornar í bita og steiktar - líka hægt að nota kaldan kjúkling
paprika ég notaði 1 rauða og 1 græna
spínat - ég nota u.þ.b. hálfan poka
mexikóostur  1 stk skorinn í teninga
1 krukka salsa sósa
rifinn ost
svo má bæta við alls konar grænmeti og því sem til er í ísskápnum - ég notaði t.d. 1 öskju af af sveppum
Fyrst  er sett nachos (ekki allan pokann) í eldfast mót, síðan kjúkling, mexíkóost, salsasósu, grænmeti
aftur nachos og ostinn yfir.

Kjúklingaréttur 2
 
4. stk. kjúklingabringur
1. ostarúllu með sætri papriku og jurtakryddi
mateiðslurjóma eða mjólk
sólþurrkaðir tómatar
2/3 pakki ritz kex
rifinn ostur
 
Steikið kjúklinginn og setjið hann neðst í eldfast mót.  Skerið sólþurrkaða tómata og látið yfir - hægt er að setja meira grænmeti hér t.d. sveppi...
Næst er rjómanum (bara spari) og osturinum hrært saman og helt yfir allt kjúklinginn og grænmetið.  í lokinn er rtz kexið mulið (gott að setja kexið í poka og mylja það þannig). Mulið kex og rifinn ostur er síðan sett efst og hitað í ofni þar til osturinn hefur bráðnað.


Döðlukaka með heitri karamellusósu
 
120 gr. smjör
5 msk. sykur
2 egg
3 dl. hveiti
1/2 tsk. salt
1 tsk. vanilludropar
235 gr. döðlur
Vatn
1 tsk natron
1 1/3 tsk lyftiduft
 
Sykur og smjör hrært saman, eggjunum bætt við og hrært.
Bætið hveiti,salti og vanilludropum saman við og hrærið.
 
Döðlurnar settar í pott ásamt vatni sem látið er flæða yfir döðlurnar.
Þetta er hitað í mauk sem síðan er látið kólna í ca. 3 mín.
Natronið hrært saman við maukið .
 
Bætið maukinu saman við allt hitt og hrærið.
Að lokum er lyftiduftið sett saman við og hrært.
 
Bakið í 40 mín við 180C. (ég setti kökuna í eldfast mót og bar hana fram heita og nýbakaða)
 
Karamellusósa:
 
120 gr smjör
120 gr púðursykur
1/4 bolli rjómi
1 tsk vanilludropar
 
Hitað í ca. 3 mín.
 
Kakan borin fram með karamellusósunni, ís og/eða þeyttum rjóma
Nammi, Namm.....


Marengsterta
 
5. eggjahvítur
300 gr. sykur
1. tsk. edik
1/2 tsk. vanulludropar
1/2 tsk. salt
 
Þeytið eggjahvíturnar og bætið sykri, ediki, salti og valilludropum saman við.  Þeytið þar til sykur er vel uppleystur og marengsinn er orðinn stífur.  Bakið við 100° í tvær klukkustundir, slökkvið á ofninum og látið kólna í honum.
 
Ofan á marengsinn fer;
 
1/2 l. rjómi
4 tromp súkkulaði
ávextir s.s. jarðarber, vínber, bláber.......
100 gr. súðusúkkulaði
 
 
Þeytið rjómann og skerið tromp súkkulaðið og setjið út í rjómann.  Skreytið með ávöxtum og bræðið suðusúkkulaðið í örbylgjuofni og "skvettið" því yfir ávextina.
 
 


» 17 hafa sagt sína skoðun

30.01.2009 17:46:11 / heimilismatur

uppskriftir

Ég hef verið löt að setja inn uppskriftir hingað en það stendur að sjálfsögðu allt til bóta :) svo hér koma 2 uppskriftir sem ég var að fá :)


Góður kjúklingaréttur

2 sætar kartöflur
skornar og settar í botn á eldföstu móti

1 poki spínat
sett yfir kartöflurnar

1 krukka fetaostur og smá af olíunni með
sett yfir

4 kjúklingabringur skornar í 3-4 hluta
brúnaðar á pönnu, Mango chutney hellt yfir og blandað saman og sett yfir

Ritzkex mulið yfir

bakað í ofni í ca 30 mín.

Pestó

1 krukka sólþurkaðir tómatar

¼ krukka svartar ólífur (ófylltar)

100 gr. rifinn parmesanostur

smá biti chilialdin (ekki fræin)

1-2 lauf hvítlaukur

70 gr. ristaðar furuhnetur

salt og pipar

c.a. ½ dl. olía (ég notaði olíuna úr krukkunni frá sólþurkuðu tómötunum)

1 msk. sítrónusafi 

Furuhneturnar ristaðar. Allt sett í matvinnsluvél nema osturinn hann er rifinn á rifjárni.  Hrært saman, olía og safi hrært samanvið. 

Og svo bættust við nokkrar uppskriftir í súpur, brauð, fisk, kjúkling og lambauppskriftir og svo pestó og ýmislegt gott þar.
 



» 17 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 18:30:37 / heimilismatur

Sörur / Sara Bernharðs

Ég ákvað að setja hér inn uppskrift af Söru Bernharðs og annari uppskrift sem heitir Sigga Beinteins en þessar uppskriftir eru úr kökubók Hagkaups J

Tengdamamma hefur alltaf hjálpað mér við að gera Sörurnar enda alveg snilldar bakari og ég er nú þekkt fyrir að vera „pínulítið“ fljótfær og það er eitthvað sem virkar ALLS ekki þegar maður er að baka sörur!! Það verður að hafa góðan tíma í þetta og virkilega gaman að dunda sér með góða jólatónlist og finna ilminn af súkkulaðinu í húsinu J

Þar sem Tengdó hefur gert þetta í nokkur ár er auðvitað uppskriftin alltaf að breytast! Og þá er það aðalega til þess að gera það auðveldara að baka og svo auðvitað er þetta smekksatriði hvað hverjum finnst til dæmis besta súkkulaðið til að hjúpa og kremið sem fer ofan á kökurnar!

Þá hefur hún breytt aðeins uppskriftinni þannig að hún notar part af Sörunum og part af Siggu Beinteins og því ætla ég að setja líka inn uppskriftina sem hún gerir, hinsvegar fylgja hinar með og þá er bara að prufa sig áfram hvað manni þykir best J

Svona lítur uppskrift tengdamömmu út

Botnarnir

260 gr möndlur

230 gr flórsykur

4 stk eggjahvítur

Hakkið möndlurnar vel niður í mixer, þeytið eggjahvíturnar alveg í topp, blandioð saman möndlum og flórsykri og gætið þess að hafa enga kekki. Blandið varlega saman við hvíturnar, setjið á plötu með teskeið og bakioð við 180° í ca 11-13 min

Krem

4 stk eggjarauður

160 gr flórsykur

160 gr smjör

50 gr kakó

2-4 msk kaffi

 

Opal hjúpsúkkulaði í rauðu pakkningunum ( bláa er gott líka!) sirka 2-3 pakka

Þeytið eggjarauður og flórsykur vel saman, hafið smjörið við stofuhita. Setjið það saman við ásamt kakóinu, blandið ca 2-4 msk af kaffi saman við og bragðið á. Kælið botnana og smyrjið kreminu á,  Það hefur reynst ákaflega vel að setja kökurnar þegar búið er að setja kremið á þær inn í frysti, þegar þær eru orðnar verulega kaldar þá er gott að setja heitt opal súkkulaðið á þær því það harðnar mjög fljótt og verður fallegt en það er brætt í skál yfir vatnsbaði .  Svo er gaman að prufa sig áfram og nota jafnvel kókosmjög út í þær eins og er í Siggu Beinteins J fyrir þá sem finnst kókosmjöl gott.

Hinsvegar geymi ég alltaf sörurnar í frysti ! það er ómögulegt að hafa þær við stofuhita því þá bráðna þær! Hinsvegar hef ég safnað að mér ísdúnkunum stóru og set þá sörur á botninn og inn í frysti svo þegar þær eru orðnar frosnar þá set ég bökunapappír og aftur sörur og inn í frysti og koll af kolli þannig að þá er hægt að frysta saman nokkur lög af sörum. 

Hér koma svo upprunalegu uppskriftirnar 

Sigga Beinteins 

4 stk eggjahvítur

220 gr flórsykur

80 gr möndlur

40 gr kókosmjöl

20 gr suðusúkkulaði

Krem

4 stk eggjarauður

160 gr flórsykur

160 gr smjör

50 gr kakó

2-4 msk kaffi

(2-4 msk kahlúa)

Hakkið möndlurnar vel niður og blandið saman við flórsykur kókos og súkkulaðið, stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við blönduna. Setjið á plötu með teskeið og bakið við 180°hita í ca 12-14 mín.

Þeytið eggjarauður og flórsykur vel saman, hafið smjörið við stofuhita. Setjið það saman við ásamt kakóinu, blandið ca 2-4 msk af kaffi saman við og bragðið á. Einnig er gott að nota khalúa eða annan kaffilíkjör. Kælið botnana og smyrjið kreminu á og hjúpið með súkkulaði. Setjið kókos yfir.

 

Sara Bernharðs

260 gr möndlur

230 gr flórsykur

4 stk eggjahvítur

Krem

120 gr sykur

1 dl vatn

4 stk eggjarauður

1 ½ msk kakó

260 gr mjúkt smjör

Súkkulaði til þess að hjúpa

Hakkið möndlurnar vel niður í mixer, þeytið eggjahvíturnar alveg í topp, blandið saman möndlum og flórsykri og gætið þess að hafa enga kekki. Blandið varlega saman við hvíturnar, setjið á plötu með teskeið og bakioð við 180° í ca 11-13 min

Setjið sykur og vatn í pott og sjóðið þar til fer að þykkna ( 116°) stífþeytið eggjarauðurnar á meðan, hellið sykurleginu varlega saman við, þeytið áfram í ca 1 mín. Blandið svo smjöri og kakói saman við með sleikju þar til allir kekkir eru farnir. Smyrjið kreminu á kalda botnana og kælið. Hjúpið svo sörurnar með súkkulaðihjúpnum . Geymist helst í frysti
kv HG


» 17 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 18:31:46 / heimilismatur

Súpur og annað gott

Ég sá þessar uppskriftir á Barnalandi enn og aftur :) og skellti þeim í súpuuppskrifta hópinn, þarna er reyndar miklu meira en bara súpur svo það verður flokkað seinna. Ekkert eins gott að góð súpa á vetrarkvöldi :)

kv HG

» 16 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 18:08:11 / heimilismatur

Muffins

Að sjálfsögðu er alltaf hægt að stóla á fólkið á barnalandi ;) eða ER

skellti inn muffins uppskriftum undir Barnaafmæli og muffins

kv HG


» 17 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 16:36:25 / heimilismatur

Muffins!

Ég virðist hafa týnt öllum muffins uppskriftunum mínum! ætlaði að gleðja ungana mína og skella mér í bakstur EN finn svo ekki uppskriftirnar !

ef eitthver á uppskriftir af muffins  ( fann tvær á netinu og þær voru alls ekki góðar!) þá endilega bjargið frúnni :) og sendið til mín í mail saga_99@hotmail.com

kv HG




» 15 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 110072
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 16 janúar
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 16 janúar
Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 110072
RSS tengill