Kjúklingabaunaréttir
Kjúklingabaunapottréttur
2 dósir (400 gr hvor) niðursoðnar kjúklingabaunir (það gera tæplega 500 grömm af soðnum kjúklingabaunum).
2 stórir laukar.
1 stórt hvítlauksrif.
1 dós niðursoðnir tómatar (400 gr).
1 msk. karrí.
1 msk. paprikuduft.
1 stórt, frekar súrt epli.
2 msk. ólívuolía.
1 msk. sojasósa.
fersk steinselja til að skreyta
Skolið kjúklingabaunirnar í köldu vatni og látið renna af þeim. Laukurinn er grófsaxaður og steiktur í olíunni í botninum á potti. Karrí og paprikuduft sett út í og hrært vel í. Eplin skorin í bita og bætt út í. Hvítlauksrifið er hakkað smátt og sett út í ásamt tómötunum og sojasósunni og hrært vel í. Allt látið malla í 25 mínútur. Kjúklingabaununum er þá bætt út í og hitað í smá stund. Fersk steinselja klippt yfir til að skreyta. Borið fram með steiktum kjötréttum eða bara eitt og sér.
í 100 grömmum af réttinum eru ca 118 kkal., 6,9 grömm prótein, 2,7 grömm fita og 16,5 grömm kolvetni
Kjúklingabaunabuff
450 g soðnar kjúklingabaunir
4 hvítlauksrif
40 g vorlaukur eða önnur gerð af lauk
1/2 tsk cumin
1 tsk sjávarsalt
Setjið kjúklingabaunir í matvinnsluvél ásamt hvítlauk, lauk, cumin og salti. Gerið litlar bollur og fletjið út og steikið á pönnu í olíu. Einnig er gott að velta bollunum upp úr sesamfræjum og steikja svo.
Berist fram með rifnum gulrótum sem búið er að blanda kanil saman við og heslihnetum (hakkaðar eða spænir).
1 Bolli kj.baunir. (1 dós)
1 laukur
4 hvítlauksrif
2 tsk garam masala krydd
1 tsk karrý
1 dós niðursoðnir tómatar.
1/2 bolli rúsinur.
1/2 bolli þurrkaðar apríkósur
1 msk hnetusmjör
1 1/2 dl eplasafi
1/2 bolli Cashaw hnetur
1/2 sítróna -safinn-
1. steikja laukinn + hvítlauk+ krydd.
2. Baunir út í + tómatar.
3. restin útí nema heturnar. Malla í 15 mín. Síðast skreyta með hnetum. Bera fram með nanabrauði og hrísgrjónum. Sjúklega gott og vel gestavænn.
Kjúklinga lasagne
4 Kjúklingabringur
1 bolli Brokkolí
1 bolli blómkál
4 gulrætur
1- 2 Paprika
Sveppir
1-3 hvítlauksrif
rauðlaukur
lasagneblöð
1 dós heilir tómatar
500 gr kotasæla
1 krukka tómatpure
2 tómatar
11% ostur
Brytja grænmetið í smá bita,
Brytja kjúklinginn í smá bita,
Steikja svo grænmetið og kjúklinginn , gott að krydda kjúllann vel
Setja svo allt yfir í pott og bætið við tómatpuré, heilu tómötunum og kotasælu og látið malla í smá stund
Setjið í eldfast mót og lasagne blöð á milli skerið svo tómata í sneiðar og leggið yfir áður en ostur er settur á.
Kjúklingasalat
kjúklingur niðurrifinn
1/2 dós maísbaunir
1/2 dós niðurskorinn ananas
1 rauð paprika
blaðlaukur
ferskt salat, iceberg eða bara úr poka
1/2 gúrka
Allt skorið niður og blandað saman. Borið fram kalt m/ mangó-karrýsósu.
mangó-karrýsósa:
2 msk mangó chutney
1 tsk karrý
2 tsk sojasósa
1 msk majónes ( má alveg sleppa)
2 dl sýrður rjómi (10%)
Þetta er rosalega góður og einfaldur réttur, mjög ferskur og sumarlegur og virkar vel í svona brunch borð.
VINSÆLL KARRÍKJÚKLINGUR
5-6 kjúklingabringur
4 rif hvítlaukur
1 peli rjómi
1/2 krukka mangóchutney (ég nota sweet mangoc. frá Rajah)
1 msk karrý (ég nota oft meira)
Kóríanderlauf (má sleppa)
Skerðu kjúklingabitana í litla bita, kryddaðu með salti og pipar og steiktu á pönnu í örlítilli olíu. Þegar kjúklingurinn er næstum gegnsteikturbættu þá söxuðum hvítlauk, rjóma, mangóchutney og karrý út á pönnuna og blandaðu öllu vel saman. Láttu malla í ca 15 mín. Stráðu kóríanderlaufi yfir undir lokin og berðu fram með hrísgrjónum, salati og hvítlauksbrauði.
4 kjúklingabringur
marínering:
1 dl olía
1 msk. rifin engiferrót
2 hvítlauksrif, pressuð
2 msk. chilísósa úr flösku
2½ dl rjómi
salt og pipar
Skerið bringurnar í strimla. Blandið saman olíunni, engiferrótinni, hvítlauknum og chilísósunni og marínerið kjúklingastrimlana í klukkustund. Brúnið kjúklin
Mexikóskt Lasagne.
Fyrir 5-6
5-6 kjúklingabringur
½ Laukur
2 Litlar rauðar paprikur eða ein stór
Eitt bréf Burrito kryddmix (má vera Taco kryddmix)
2 dósir tacoeða salsasósa, t.d. Old er pasa ; Thick?n Chunky salsa medium eða eftir smekk.
½ lítra matreiðslujómi eða venjulegur.
6 tortillas pönnukökur eða 8 Fajita pönnukökur (þær eru minni)
Rifinn ostur
Kjúklingabringurnar skornar í teninga, laukurskorin smátt og paprika í teninga.
Laukur sreiktur ásamt papriku á pönnu, kjúklingabitum bætt við og kryddað með burritokryddi. Þegar kjúklingurinn er steiktur er salsasósu og rjóma bætt í og látið malla smá stund.
Elfast mót- fyrst sett í botininn tortillas pönnukökur, skornar til, til að þekja formið. Svo kjúklingasósan og pönnukökurnar til skiptist, efst kjúklingasósa og ostur settur yfir.
Ca. 15 mín í ofni eða þar til ostur hefur bráðnað og brúnast aðeins.
Borið fram mð sýrðum rjóma og avokadosósu (2 avakado og 1 pk. quacomole duft) eða quacamole sósu, fersku salati og doritos flögum...
gastrimlana í olíu og hellið síðan rjómanum yfir. Látið krauma í 5-6 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk, bætið e.t.v. chilípipar út í ef þurfa þykir. Berið fram með hrísgrjónum eða pasta.
5-6 bringur
salt/pipar
4 rif hvítlaukur
1 peli rjómi
½ krukka Mangochutney
1 msk karrí
Kjuklingurinn skorinn niður í litla bita, kryddaður með salt og pipar, steiktur á pönnu. Þegar kjúklingurinn er alveg að verða steiktur er lauknum og öllu dótinu hellt út á og hrært saman. Látið malla í svona 15 mín. Borið fram með með hrísgrjónum og brauði.
2 bringur
3-4 tómatar
4 msk grænt pestó
2 msk olía
fetaostur
salt og pipar
Pestó, olía salt og pipar hrært saman í eldföstu móti. Kjúllanum velt upp úr því, tómötum raðað ofan á í sneiðum og fetaostur muldur yfir. Inn í ofn í ca. 45 mín á 200. Þetta er hrikalega gott! (ef þér líkar pestó)
2 kjúklingar í bitum
sósa:
2 dl Hunts grillsósa
1 dl sojasósa
1 dl aprikósumarmelaði
100 gr púðursykur
50 gr smjör
Þetta er allt saman brætt saman í potti. Kjúklingi raðað í eldfast mót og sósunni hellt yfir. Haft í ofni í 40 -60 mín. á ca. 200 gráðum.
5 dl frosið brokkólí
5 dl sjóðandi vatn
480 g frosnar, bein- og skinnlausar kjúklingabringur
2½ dl rifinn Cheddar ostur
¼ tsk McCormick hvítlauksduft
1 stk Uncle Ben´s Country Inn Broccoli au Gratin hrísgrjón í pakka
Matreiðsla
Hitið ofninn í 220°C. Setjið hrísgrjón og kryddblöndu í eldfast mót og hellið sjóðandi vatninu yfir; blandið vel saman. Setjið kjúklinginn í eldfasta mótið og stráið hvítlauksdufti yfir. Lokið með álpappír og bakið í 30 mínútur. Bætið þá brokkólí og osti saman við og bakið áfram undir álpappír í 8-10 mínútur
(þetta er ótrúlega gott)
Kjúklingabringur
Beikonbréf
(Ekkert krydd)
Kjúklingabringur skornar langsum í ca. 3 bita. Beikoni vafið utan um, gott að tylla beikoninu með tannstöngli. Grillað á útigrillinu. Alveg hægt að steikja líka eða setja í eldfastmót inn í ofn.
Sósa
1 laukur
2 hvítlauksrif
Glassera þetta á pönnu.
2 dl tómatsósa
1 dl HP sósa
sojasósa
svartur pipar
2 msk Worchestersósa
ca. 2 dl appelsínusafi
1 msk edik.
Allt sett út á pönnuna (pottinn) og hrært saman.
Borið fram með hverju sem er.
1.kg kjúklingur
1 msk estragon, ferskt
hunang til penslunar
Salat
1 dl brauð teningar, ristaðir
½ dl balsamic edik
2 msk tómatar, sólþurrkaðir
2 msk parmigiano ostur
1 stk avókadó
1 stk rauðlaukur
1 stk mangó
blaðsalat
ólífur, svartar
furuhnetur, ristaðar
lambhagasalat
Ristið furuhneturnar á heitri pönnu og stráið ögn af salti yfir. Saxið síðan estragonið og rífið ostinn (parmigiano). Skerið tómatana og rauðlaukinn smátt, en avókadóið og mangóið í bita.
Penslið kjúklinginn með hunangi og stráið fersku estragoni yfir. Steikið í ofni við 120°C í 60 mínútur. Takið kjúklinginn úr ofninum og kælið. Rífið salatið niður í stóra skál og blandið öllu saman við sem fara á í salatið. Skerið síðan kjúklingakjötið í sneiðar eða bita og bætið þeim saman við. Berið fram með góðu brauði.
1 l Uncle Ben´s Boil in Bag hrísgrjón (5 dl jafngilda 2 pokum)
480 g kjúklingabringur, ferskar
3¾ dl ananasbitar
1¾ dl teriyaki sósa
2 stk appelsína, skorin í þunna báta
1 stk rauð paprika, skorin í 2,5 sm bita
1 stk græn paprika, skorin í 2,5 sm bita
Skerið kjúklinginn í 2,5 sm bita. Setjið kjúkling, appelsínubáta, ananas og paprikur á víxl upp á grillpinna (u.þ.b. 25 sm langa) og penslið teriyaki sósu yfir. Sjóðið á meðan hrísgrjón. Grillið pinnamatinn í 10-15 mínútur, snúið einu sinni og penslið af og til með teriyaki sósu. Berið fram með hrísgrjónum.
2½ dl rjómi
1 msk kálfakraftur frá Fond
1 msk t="on">t="on">Dijon sinnep
2 tsk estragoni, þurrkað
2 tsk bernesessens
4 stk kjúklingabringur án skinns
Matreiðsla
Steikið bringurnar á pönnu saltið og piprið eftir smekk. Takið bringurnar af pönnunni hellið rjómanum út á pönnuna og látið restina af hráefninu út í. Setjið síðan bringurnar aftur út á sósuna á pönnunni og látið sjóða við vægan hita uns kjúklingurinn er fulleldaður. Nammi namm!
Þetta er borið fram með fersku salati og hrísgrjónum.
Kjúklingabringur
Rjómaostur m .sólþurrkuðum tómötum.
Pestó krukka m. sólþurrkuðum tómötum
1 peli rjómi
Ég hef stundum skorið smá vasa á bringurnar og sett rjómaost með sólþurkkuðum tómötum inní og lokað fyrir með tannstöngli. Skelli svo á þær pestó með sólþurrkuðum tómötum og set í eldfast mót. Set einn pela af rjóma í pott ásamt smá rjómaostinum og læt það bráðna saman og helli yfir allar bringurnar. Svo set ég þetta í ofninn í svona 30-40 mín á 200°C, passa að bringurnar séu eldaðar í gegn. Vona að þetta komi að einhverjum
1 kjúklingur brytjaður
1/2 ltr matreiðslurjómi
Sósa
5 dl tómatsósa
2-3 msk tandoori masala (krydd frá Rajah)
1 1/2 tsk karrí
1 1/2 tsk pipar
1 tsk salt
Allt hrært saman og helmingnum smurt á kjúklingabitana, setja í eldfast mót og inn í ofn í 40 mínútur á 200°C. Hræra rjómanum saman við hinn helminginn af sósunni, hella yfir kjúklinginn og hafa áfram í 30 mínútur, ausa nokkrum sinnum yfir. Borið fram með hrísgrjónum og salati.
3 kjúklingabringur (án húðar)
2 msk olía af sólþurrkuðum tómötum
kryddað með sítrónupipar og salti.
Kjúklingabringurnar eru steiktar í olíunni af sólþurrkuðu tómötunum. Settar í eldfast mót.
Eftirfarandi er einnig steikt á pönnu í olíunni af sólþurrkuðu tómötunum:
1 saxaður laukur
6-8 sneiddir sveppir
2 sneiddar gulrætur
4-6 sólþurrkaðir tómatar eða eftir smekk
1 stór teningur kjötkraftur
1 dós rjómaostur m/sólþurrkuðum tómötum
1/2 peli rjómi
timian (ferskt eða þurrkrydd)
Þetta er látið krauma aðeins og hellt yfir kjúklinginn og sett í ofn í ca. 30 mínútur við 200°C. Hafa álpappír yfir. Borið fram með góðu brauði og salati.
Mjög fljótlegur og góður réttur sem klikkar aldrei.
Kjúklingabringur (eða leggir eða bitar) settar í eldfast mót.
1 bolli barbecue sósa
1 peli rjómi
Niðurskornir sveppir að vild.
Barbecuesósan og rjóminn hrært saman og sveppirnir settir út og síðan hellt yfir kjúllann.
Bakað í ofni í 35-40 mín.
Meðlæti:
Hrísgrjón og ferskt salat.
1 ferskur Kjúlli (þyngd fer eftir fjölda og aldri þeirra sem borða)
1 Ritz-kexpakki (eða eftir smekk)
Smjör
Sterkur ostur
Matreiðsla
Kjúklingurinn er hlutaður niður (eða keyptur í bitum). Ritz-kexið sett í poka og mulið vel með kökukefli. Smjörið brætt í potti og kjúklingabitunum velt upp úr því. Síðan er þeim velt upp úr kexmulningnum.
Bitarnir því næst settir í eldfast mót og mikið af rifnum sterkum osti dreift yfir. Þetta er bakað í 50 mínútur við 200 gr.C og er borið fram með hrísgrjónum og sojasósu eða karrysósu með laukbitum og fersku salati.
200 g spínat
60 g hvítlaukssmjör
50 g smjör
½ dl rjómi
7 stk stórar kartöflur
4 stk kjúklingabringur
1 stk sítróna
basil (1 búnt)
Parmaskinka 4 góðar sneiðar
salt og pipar
Matreiðsla
Kjúklingabringurnar eru fylltar með hvítlaukssmjörinu og Parmaskinkunni. Brúnaðar á pönnu ca. 1 mín hvor hlið, síðan bakaðar í ofni í 10 mín við 180 gráður.
Spínatið er steikt á pönnu með smá smjöri, salti og pipar. Kartöflustappan er búin til úr soðnum kartöflunum, smjöri, rjóma, salti, pipar og basil eftir smekk. Gott er að kreista sítrónu yfir kjúklingin áður en hann er borinn fram.
500 g spergilkál, skorið í bita
3 dl kjúklingasoð
2½ dl undanrenna
2½ dl jógúrt, hreint
200 g ostur, 11%
4 msk maisenamjöl
1 msk karrí
6 stk kjúklingabringur, án húðar
Aðferð
1. Steikið kjúklingabringurnar í 175°C heitum ofni í 30-40 mín.
2. Léttsjóðið spergilkálið.
3. Leysið maisenamjölið upp í undanrennunni. Látið suðuna koma upp á kjúklingasoðinu og bætið undanrennunni varlega saman við. Blandið jógúrt og karrí saman við og hrærið vel.
4. Skerið kjúklingabringurnar í strimla. Leggið kjúklinginn og spergilkálið í eldfast mót, hellið sósunni yfir, stráið rifnum osti yfir og bakið í 25-30 mín. við 175°C.
Berið réttinn fram með hrísgrjónum og brauði eða salati ef vill.
300 g sellerírót
300 g kartöflur,
125 g smjör
4 msk ólífuolía
6 stk heilar tímíangreinar
5 stk sneiðar parmaskinka (má nota beikon)
1 stk hvítlauksrif
1 stk hvítlaukur
1 stk sítróna
1 stk stór kjúklingur
½ stk búnt tímían
salt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð
1. Saxið hvítlauksrifið, skerið parmaskinkuna (beikonið) í litla bita, flysjið þetta gula af sítrónunni og saxið. Rífið timíanið af stilkunum og saxið. Blandið þessu öllu saman í skál og kreistið smjörið saman við. Saltið og piprið.
2. Losið varlega um bringuhúðina á kjúklingnum, passið að hún rifni ekki.
3. Komið meirihluta kryddsmjörsins undir húðina og jafnið því á bringuna.
4. Skerið í lærin niður að beini tvo skurði, ef vill. Þannig verður kjötið mjög mikið eldað á þessu svæði og mjög ljúffengt að margra mati. Nuddið kryddsmjöri í skurðina og á lærin.
5. Sneiðið sítrónuna og komið sneiðunum fyrir í kviðarholinu.
6. Skerið sellerírótina og kartöflurnar í bita. Blandið þeim saman í skál ásamt heilum hvítlauksrifum, timíangreinum og ólífuolíu. Saltið og piprið og komið þessu fyrir í kringum kjúklinginn í ofnskúffunni. Bætið endilega við fersku grænmeti s.s gulrótum, rófum o.þ.h,
Mango chutney kjúklingur
2 sætar kartöflur
skornar og settar í botn á eldföstu móti
1 poki spínat
sett yfir kartöflurnar
1 krukka fetaostur og smá af olíunni með
sett yfir
4 kjúklingabringur skornar í 3-4 hluta
brúnaðar á pönnu, Mango chutney hellt yfir og blandað saman og sett yfir
Ritzkex mulið yfir
bakað í ofni í ca 30 mín.
Kjúklingasalat með núðlum og sesamfræjum
1 dl olía
½ dl balsamedik
2 msk sykur
2 msk sykur
2 msk sojasósa
1 rauðlaukur saxaður
Sjóðið allt saman í u.þ.b 1 mínútu og hrærið í á meðan blandan kólnar.
80-100 gr núðlur brotnar í smá bita
50 gr furuhnetur
2-3 msk sesamfræ
4 kjúklingabringur skornar í litla bita
Salt og pipar
Kjúklingakrydd
Olía til steikingar
1 ½ dl sweet hot chili sósa
1 poki salatblanda
300 gr kokteiltómatar
1 mangó eða ferskja
Ristið núðlur furuhetur og sesamfræ saman á þurri pönnu. Kryddið kjúkling með salti, pipar og kjúklingakryddi og brúnið í olíu á pönnu. Hellið sweet hot chili sósu yfir og látið malla svolitla stund. Blandið salati tómötum og mangó saman í skál. Bætið kjúkling saman og laukblöndunni saman við.
Kjúklingur með klettakáli og bræddum osti
4 kjúklingabringur þykkar
3 msk ólífuolía
1 tsk paprikuduft
1 eggaldin
Gróft salt
150gr tómatsósa úr dós
2 msk tómatmauk
2 msk tómat-tapenade t.d frá Sacla
2 hvítlauksgeirar pressaðir
Salt og svartur pipar
50 gr klettakál
3 msk fersk basilika söxuð
100 gr mozzarellaostur rifinn
1 lítill rauðlaukur, smátt skorinn (má sleppa)
Snyrtið kjúklingabringur og kljúfið þær þannig að úr verði 8 þunnar kjúklingabringur. Blandið sama olíu og paprikudufti og penslið á bringurnar.skerið eggaldin í um ½ cm þykkar sneiðar, stráið grófu salti yfir þær báðu megin og látið í sigti yfyir vask í uþb 15-20 mín. Blandið tómatsósu, tómatmauki, tapenade og hvítlauk sama í skál og kryddið með salti og pipar. Skolið saltið vel eggaldinsneiðuum og þerrið þær. Grillið bæði kjúklinginnn og eggaldinsneitðar á uþb 6-8 mín á hvorri hlið en munið að kjúklingurinn þarf að vera gegnsteiktur. Setjið knippi af klettakáli ofan á hverja kjúklingabringu síðan eggaldin og loks sósunni ásamt basiliku. Dreifið rifnum osti yfir og lokum örlitlum lauk. Grillið áfram í uþb 3-4 min eða þar til osturinn byrjar að bráðna.
Stökkar kjúklingabringur með ísbúa og parmaskinku
200 gr konfekttómatar
200 gr ferskur aspas
2 msk olía
Salt og nýmalaður pipar
80 gr pisasíuhnetur
60 gr brauðrasp
30 gr hveiti
1 egg
2 msk mjólk
4 kjúklingabringur
4-6 msk olía
200 gr ísbúi sneiddur þykkt í 8 sneiðar
8 sneiðar parmaskinka
Hitið ofninn í 200° og setjið tómata, aspar, olíu, salt og pipar í ofnfast mót og setjið í ofninn í 10 mín. Blandið hnetum, raspi, og hveiti saman í skál. Þeytið egg ásamt mjólk í annari skál. Setjið filmuplast undir og yfir kjúklingabringu og fletjið bringuna aðeins út með flötum buffhamri eða öðru áhaldi. Farið eins að við allar bringurnar. Hitið 4-6 msk af olíu á pönnu. Veltið kjúklingabringum upp úr eggjablöndunni og síðan raspblöndunni. Steikið bringurnar í u.þ.b 4 mín á hvorri hlið. Setjið þær í ofnfast fat leggið 2 sneiðar af osti ofan á hverja bringu og bregðið in í ofn eða undir grill þar til osturinn fer að bráðna. Berið fram á fatinu með skinku ofan á og tómata og aspas með eða skammtið á diska.
Kjúklingauppskrift
100 gr cashewhnetur
600 g kjúklingabringur
2 dl saxaður laukur
3 msk smjör til steikingar
1 1/2 msk garam marsala krydd
½ tsk cayannpipar ( má sleppa )
1 dós niðursoðnir tómatar
1 dós 180 gr óskajógúrt með melónukokteil
3 tsk maisenamjöl
1 tsk sykur
Salt og nýmulinn svartur pipar
Aðferð:
Ristið
cashewhneturnar á pönnu og setjið til hliðar. Skerið
kjúklingabringurnar í strimla, steikið kjúklingastrimlana í smjörinu
ásamt lauknum.
Kryddið með garam marsala og cayannpipar ( má sleppa eða bæta í síðast fyrir mildari sósu).
Blandið niðursoðnum tómötum saman við og lækkið hitann.
Blandið maisenamjölinu í jógúrtina og hrærið saman við á pönnunni.
Bragðbætið með sykri, salti og e.t.v meira af kryddi.
Að lokinni eldun stráið yfir cashewhnetunum og berið fram með nan brauði og hrísgrjónum.